Optimize Your Performance with a Mental Training Session | Book Today

Bókaðu hugræna frammistöðuráðgjöf í dag!

Byggðu upp sjálfstraust, náðu árangri undir pressu og hafðu gaman
með stuðningi frá þreföldum Ólympíufara sem hefur verið þar sem þú ert.
Hljómar eitthvað af þessu kunnuglega?
  • Þú æfir á fullu en trúir samt ekki á þig þegar mest á reynir

  • Þú ofhugsar fyrir keppni eða á meðan á henni stendur

  • Þú hefur sjálfstraust einn daginn en þann næsta tekur stressið yfir

  • Þú veist að þú átt meira inni, en einhvern veginn nærðu því bara ekki út

  • Þú ert orðin(n) þreytt(ur) á að vera svekkt(ur) eftir keppnir og velta fyrir þér hvað klikkaði

Ef þú kannast við eitthvað af þessu þá ertu ekki ein(n), og það er ekkert að þér.
Þetta er nákvæmlega það sem hugræn frammistöðuþjálfun hjálpar með!
Það er hægt að breyta þessu
Þú þarft ekki lengur að velta því fyrir þér hvað sé að. Þú þarft ekki að fara að keppa með hnút í maganum. Og þú þarft ekki að reyna að finna útúr þessu sjálf(ur).
Hugræn frammistaða er hæfileiki alveg eins og styrkur eða tækni og það er hægt að þjálfa hana.

Ímyndaðu þér að mæta í næstu keppni róleg(ur), einbeitt(ur) og tilbúin(n) að sýna þitt besta.
Í þessum 1:1 ráðgjafartíma færðu hagnýt verkfæri til að skilja hugann þinn, stjórna pressunni og finna fyrir meiri sjálfstrausti í íþróttinni.
Þetta færðu
  • 60 mínútna 1:1 ráðgjafartíma á Zoom sem er sniðinn að þínum þörfum og þinni íþrótt

  • Hjálp við að finna út hvað er að halda aftur af þér og hvernig þú getur unnið úr því

  • Verkfæri og aðferðir sem eru sérsniðnar að þínum þörfum

  • Upptöku af tímanum ef þú vilt svo þú getir horft aftur þegar þér hentar

  • Stuðning frá einhverjum sem hefur keppt á stærsta sviðinu og skilur nákvæmlega hvað þú ert að ganga í gegnum

Af hverju ættir þú að vilja vinna með mér?

Ég heiti Ásdís, þrefaldur Ólympíufari og ráðgjafi í hugrænni frammistöðu. Undanfarin fimm ár hef ég hjálpað nærri 200 íþróttafólki að byggja upp sjálfstraust, takast á við pressu og ná sínum besta árangri, allt á meðan þau hafa hrikalega gaman. Með 20 ára reynslu af keppni á hæsta stigi, doktorsgráðu í ónæmisfræði (já, ég kann að kafa djúpt í vísindin) og 30 ETC einingar í íþróttasálfræði, sameina ég vísindalega viðurkenndar aðferðir og raunverulega reynslu til að gefa þér aðferðir sem virka. Hvað gerir mig öðruvísi en aðra þjálfara? Ég hef sjálf verið nákvæmlega þar sem þú ert, svo ég skil hvað þú ert að ganga í gegnum. En ég hef líka vísindalega þekkingu til að styðja við það.

Leyfðu mér að sýna þér hvernig aðeins örfáar mínútur af hugrænni þjálfun á dag get gert þér kleift að nýta hæfileika þína til fulls!

Það sem annað íþróttafólk segir

Sannar sögur frá íþróttafólki sem ég hef unnið með ⬇️

Fyrir hverja eru ráðgjafartímarnir?

Þeir er fyrir þig ef:

✅ Þú tekur íþróttina alvarlega og vilt ná öllu útúr þér
✅ Þú vilt mæta tilbúin(n), með sjálfstraust og einbeitingu þegar mest á reynir
✅ Þú ert að æfa af fullum krafti og vilt að hugarfarið styrkist líka
✅ Þú ert forvitin(n) um hugræna þjálfun og opin(n) fyrir því að prófa eitthvað nýtt
✅ Þú vilt ekki að frammistaðan þín sé háð tilviljunum

Þeir eru líklega ekki fyrir þig ef:

❌ Þú ert að leita að skyndilausnum
❌ Þú hefur lítinn áhuga á að bæta hugrænu hliðina
❌ Þú vilt að einhver annar leysi vandamálin fyrir þig
❌ Þú ert ekki tilbúin(n) að skoða sjálfa(n) þig eða prófa nýjar leiðir

Svona virkar þetta

Skref 1: Veldu dag og tíma sem hentar þér
Skref 2: Kláraðu bókunina með því að setja inn netfang, heimilisfang og greiðsluupplýsingar
Skref 3: Þú færð strax staðfestingarpóst og fundarboð í dagatalið
Skref 4: Þú færð áminningarpóst 30 mínútum áður en tíminn byrjar
Skref 5: Taktu þátt í tímanum á Zoom annaðhvort úr tölvupóstinum eða í gegnum Athletes Zone appið og fáðu persónulegan stuðning
Skref 6: Þú labbar í burtu með skýrari sýn, verkfæri og plan sem þú getur byrjað að nota strax

Tilbúin(n) að bóka?

Þessi 60 mínútna 1:1 tími kostar 200€ og innifalin er upptaka sem þú getur horft á aftur hvenær sem er. Fáðu skýra sýn, hagnýt verkfæri og plan sem þú getur byrjað að nota strax.
image
image
Frammistöðu Ráðgjafi, Ólympíufari og fyrirlesari
© 2025 Annerud Media AB

Vertu í sambandi

image
image
image
image